mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Frú forseti. Það er full ástæða til að fagna þessari þingsályktunartillögu sem við erum hér með um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030. Það er auðvitað gott þegar stjórnvöld hafa í hyggju að móta heildræna stefnu til að koma betur til móts við sístækkandi hóp á þessu aldursbili, sem er auðvitað frábært af því að það eina sem það segir okkur í rauninni þegar aldurshópurinn 67 ára og eldri fer svona mikið stækkandi er að við búum við býsna gott velferðarkerfi, gott heilbrigðiskerfi og erum í góðu samfélagi þannig séð og búum fólki þannig lífskjör að það lifir lengi. En ég óttast það örlítið að þetta verði svona enn einn hópurinn og lítið verði um efndir.
Það er að mörgu að hyggja í þessu og ég gluggaði aðeins í þær umsagnir sem bárust í samráðsgátt þegar þetta var sent inn þangað. Þar leggur t.d. Félag íslenskra öldrunarlækna höfuðáherslu á að það verði ríkt samráð við mótun þessarar stefnu við fagaðila, þjónustuþega og þjónustuveitendur. Fyrst við erum farin að tala um samráð, og við erum í því miðju, rétt eins og við töluðum um í sambandi við réttindi sjúklinga í gær og í dag, er það lykilatriði að rætt sé við þá sem eiga að taka á móti þjónustunni, þá sem fá þjónustuna. Að það sé ekki verið að búa til, eins og við höfum rætt hérna í dag, einsleit úrræði fyrir fólk sem við teljum að hagi sér á einhvern hátt, að það hafi áhuga á einhverju, að allt gamalt fólk hafi gaman af því að spila bingó af því að við erum alls konar, með ótrúlega ólík áhugamál og ólíkar þarfir og það á líka við um þennan hóp.
Þarna á meðal eru líka einstaklingar sem því miður er slíkur minnihlutahópur að hann hefur fengið mjög litla athygli og ég bið hæstv. heilbrigðisráðherra um að hafa það sérstaklega í huga. Það eru eldri fíklar og eldri einstaklingar með geðrænar áskoranir. Það var svo áhugavert í hv. velferðarnefnd á síðasta kjörtímabili þegar við vorum að ræða um jaðarsetta hópa. Við vorum að ræða við stóran hóp af þjónustuveitendum varðandi þá sem eru með tvígreindan vanda. Þá erum við að tala um fólk, bæði ungmenni og miðaldra, sem er annars vegar fíklar og hins vegar með einhverjar geðrænar áskoranir. Þá spurði ég: Hvað með eldra fólk? Þá brást einn mætur maður þannig við að það væru engir slíkir í hópnum 67 ára og eldri. Við vitum auðvitað betur. Í hópnum 67 ára og eldri eru líka fíklar og líka fólk með geðrænar áskoranir. Það voru búsetuúrræði til fyrir þennan hóp en ég held að þau séu alveg horfin, mögulega vegna þessarar hugmyndafræði að ekki eigi að setja alla þá sem eru í viðkvæmri stöðu á sama stað, þeir eiga að vera innan um aðra. Þessi ákveðni hópur sem þarf þjónustu getur ekki verið hvar sem er, gengur mögulega illa í svona mjög settlegum búsetukjörnum, mjög settlegum hjúkrunarheimilum þar sem eru viðkvæmir einstaklingar, mögulega með einhvers konar heilabilun og þess háttar þegar enn eldra er orðið og þá fara þessir hópar frekar illa saman. En það verður samt að vera til einhvers konar úrræði fyrir þennan hóp þótt fámennur sé.
Mig langar að ræða um búsetukjarna sem ég ræddi aðeins við hæstv. ráðherra áðan. Við þurfum að horfa líka miklu breiðar á það hvernig við komum til móts við þjónustuþörf einstaklinga sem eru orðnir vel fullorðnir, hvernig við komum til móts við félagsþörf, þörf fyrir öryggi af því að það er allt of víða þar sem einn einstaklingur, ekkill eða ekkja, býr í mjög stóru húsi, einfaldlega af því að það er ekkert annað í boði. Það er dýrara að halda úti heilbrigðisþjónustu, heimaþjónustu sem kemur daglega eða þrisvar í viku eða hvað sem er, þegar um er að ræða svo mikla fjarlægð á milli einstaklinganna sem þjónustunnar njóta. Ég held að við eigum að reyna að fara í einhvers konar húsnæðisátak hreinlega, þar sem við sjáum fyrir okkur að geta búið til einhverja þjónustukjarna þar sem er alls konar þjónusta til staðar, mögulega á jarðhæðinni, eins og maður sér að er verið að byggja víða, t.d. á Valssvæðinu þar sem er atvinnuhúsnæði á neðstu hæðinni. Þar getur verið hárgreiðslustofa, veitingastaður, bar, kaffihús, samkomusalur sem hægt er að leigja, þvottahús, hreinsun, rými fyrir heilsugæslulækni o.s.frv. Það er hægt að hafa ýmislegt. En munurinn á þessu og því sem var byggt í árdaga er að það eru ekki íbúarnir í þessum búsetukjörnum eða fjölbýlishúsum eða hvað við viljum kalla þetta, sem borga fermetrana fyrir atvinnuhúsnæðið á neðstu hæðinni, eins og var alltaf hér áður fyrr þar sem verktakarnir sópuðu öllum peningunum í sína sjóði og fermetraverðið á íbúðunum var himinhátt af því að það þurfti að standa straum af kostnaði við rýmið þar sem þjónustuveitandinn ætlaði að vera. Fyrir utan það að ef þú sem þjónustuveitandi, hvort sem þú vilt reka veitingastaði eða hvað sem er, getir þá miklu frekar átt möguleika á að veita þjónustuna til fleiri einstaklinga en bara þeirra sem búa í þessum kjarna.
Ég held að við þurfum að fá stjórnvöld í lið með okkur að búa til hvata fyrir verktaka að byggja svona. Þetta er hagræði fyrir þá sem veita heimaþjónustu, að hafa marga á sama stað. Þetta er tvímælalaust jákvætt fyrir það eldra fólk sem fær þarna félagsskap, getur mögulega farið og hitt fólk þarna eða bara ekki, af því að, eins og hefur komið fram hér, við munum ekki geta svarað allri þessari þjónustuþörf með því að byggja fleiri og fleiri hjúkrunarrými. Það er í rauninni útilokað.
Mig langar aðeins í lokin að minnast á að umönnunarbyrði eða umönnun Íslendinga á öldruðum ástvinum sínum, langveikum og öðrum fjölskyldumeðlimum er umtalsvert meiri hér á landi en í Evrópuríkjum. Í Evrópu eru 4% fullorðinna sem þurfa að annast alla umönnun ástvina sinna. Á Norðurlöndum eru það 3% en á Íslandi eru það 9%. Það er auðvitað göfugt að geta annast ástvini sína í ellinni, geta sinnt þeim og jafnvel hjúkrað, en það er ekki hægt að horfa fram hjá því að það er líka þannig að mesta nýgengi örorku er hjá konum yfir fimmtugu. Það er ekki ólíklegt að einhver þeirra sé komin á örorku eftir mikla umönnun við ættingja sína og fjölskyldumeðlimi. Þetta lendir frekar á konum en körlum. (Forseti hringir.) Það er því að mörgu að hyggja fyrir þá sem fá þessa þingsályktunartillögu til að búa til aðgerðaáætlun. (Forseti hringir.) Ég ætla að fá að koma aftur upp af því að mig langar að koma inn á (Forseti hringir.) nokkra aðra þætti.