mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir seinna andsvar og tek heils hugar undir það þegar hv. þingmaður talar um mikilvægi þess að tilheyra og mikilvægi þess að það hafi tilgang að maður vakni á morgnana, að það sé tilgangur með því að fara fram úr og þess háttar. Það þarf auðvitað að vera þannig vegna einmanaleika — af því að það eru allir svo uppteknir, svo er allur gangur á því hvort fólk á fjölskyldur eða ekki, hvort afkomendur búi á svæðinu eða ekki — þá er svo mikilvægt að það sé einhvers konar samfélagsleg virkni sem er til þess að taka á móti allri þessari flóru og nefni ég bingóið enn einu sinni. Við höfum svo ótrúlega ólíkar þarfir (Forseti hringir.) og þá er held ég best að byrja á því að hugsa þetta út frá einhvers konar samfélagi, að það sé einhvers konar félagsskapur í nágrenninu.