mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég verð að segja að þó að ég sé nú ekki háöldruð, 50 ára og eins dags, þá finn ég samt einhvern veginn hvað maður hefur komist úr æfingu með að vera bara virkur í félagslífi. Ég heyrði haft eftir eldri manni á tíræðisaldri, býsna sprækum, að hann vildi þó frekar fá að fara úr Covid en þessum andskotans leiðindum, svo að ég vitni í hann, af því að það var búið að loka öllu. Hann gat ekki farið og hitt vini sína í hádeginu, sem hann gerði alltaf, en þeir bjuggu samt allir á sama stað og fengu ekki að hitta neinn. Það máttu engir gestir koma inn en þeir máttu samt ekki hitta hver annan og þeir fengu matinn á hurðarhúninn í plastbökkum. Þetta var svo óbærilegt og þetta tók svo ofboðslega langan tíma. Þannig að ég hef auðvitað áhyggjur af þessu eins og svo sem okkur öllum sem erum að koma úr þessum (Forseti hringir.) skelfilega faraldri. Við þurfum kannski að trekkja okkur öll svolítið í gang.