mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Virðulegur forseti. Ég held að þetta sé einmitt mjög mikilvæg athugasemd og það væri mjög vont ef það færi að gerast í málefnum aldraðra sem hefur gerst þegar kemur að börnum í stjórnartíð hæstv. barnamálaráðherra að verkefnum sé hlaðið yfir á sveitarstjórnarstigið án þess að þau séu fjármögnuð með fullnægjandi hætti. Mér finnst það svolítið lýsandi í greinargerð þessarar þingsályktunartillögu hvernig brugðist er við athugasemdum, eins og hérna:
„Gerðar voru athugasemdir við …“ — Nei, hvar var þetta?
Það sem ég er kannski að segja er að verið er að leggja til hitt og þetta. Svo er alltaf vísað einhvern veginn til einhverrar fjarlægrar framtíðar um það hvaðan peningar eiga að koma og það þykir ekki viðeigandi að glíma við þær spurningar í þessari þingsályktunartillögu o.s.frv. (Forseti hringir.) Þannig að við vitum ekki neitt. Það er ósköp erfitt einhvern veginn að leggja eitthvert mat á þetta.