152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.

418. mál
[23:12]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég er nú ekki sérfræðingur í þingsályktunartillögum eða öðru en það sem mér finnst vera taktur hér er að ekki er mikið talað um upphæðir í því sem er lagt til samþykktar og um mikilvægi þess, í ljósi fjárlaga og allt, að alla vega sé komið með einhverja tillögu að upphæð, að einhvers konar mat sé gert á því sem á að gera, vegna þess að það þarf að lyfta grettistaki í þessum málaflokki á svo mörgum stöðum, að ekki einu sinni sé komið með einhverja tillögu að mögulegum upphæðum. Það er bara mjög erfitt að trúa að þetta sé að fara að verða til bóta. Er hv. þingmaður sammála?