mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Virðulegur forseti. Það er að mörgu að hyggja í þessu enda viðfangsefnið stórt og mikið og maður nær ekki alveg utan um alla þessa hluti. Ég hjó eftir einu í ræðu hv. þingmanns, þegar hann talaði um að 160 Íslendingum hafi verið fyrir komið fyrir á hjúkrunarheimilum þrátt fyrir að vera miklu yngri. Á ruv.is í dag má lesa um 59 ára gamla konu sem er vistuð á hjúkrunarheimili með fólki sem er 90 ára gamalt. Þarna er verið að taka þjónustuúrræði sem eiga að vera fyrir eldri borgara og nýta þau undir úrræði sem enginn hefur verið að sinna en er auðvitað bara á ábyrgð stjórnvalda að sinna. (Forseti hringir.) Nær þetta nokkurri átt, að verið sé að skreyta sig með einhverju sem er svo ekki til staðar?