152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

breyting á starfsáætlun.

[15:03]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti hefur í samráði við forsætisnefnd og formenn þingflokka ákveðið að gera breytingar á starfsáætlun. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis eru miðvikudagurinn 23. mars og fimmtudagurinn 24. mars nefndadagar. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að hafa þingfundi þá daga og hefjast þeir klukkan 15 á miðvikudaginn og 10.30 á fimmtudag. Nefndir munu funda fyrir þingfundi þessa daga.