Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá matvælaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 484, um samskipti við hagsmunaverði og skráningu þeirra, frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.
Einnig hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 552, um vopnaburð lögreglu, frá Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur.
Þá hefur borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 545, um aðgerðir á ábyrgð ráðuneytisins gegn ofbeldi og afleiðingum þess, frá Andrési Inga Jónssyni.
Að lokum hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 570, um aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum, frá Kolbrúnu Baldursdóttur, á þskj. 432, um samræmda móttöku flóttafólks, og þskj. 433, um áætlaðan aukinn kostnað af þjónustu við flóttafólk, báðar frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.