um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Það er margt hægt að ræða nú þegar við fáum að sjá aðeins betur á spilin sem liggja fyrir frá ríkisstjórn á þessum tímapunkti þingvetrar. Eitt vildi ég fá að nefna í framhaldi af flokksþingi Framsóknarflokksins frá því um helgina: Þar talaði formaður flokksins mjög skýrt um að til greina kæmi að hækka veiðigjöld, hann talaði um ofurhagnað. Það hefur varaformaður flokksins líka gert. Það hefur formaður atvinnuveganefndar, úr Framsóknarflokknum, einnig gert. Ég vil því vekja athygli þingheims og forseta á því að það er skýr meiri hluti fyrir því að hækka veiðigjöld í þessu landi. Ég ætla að kasta því út til okkar allra, og kannski ekki síst til Framsóknarflokksins, að þessum orðum fylgi efndir og að við hendumst í þetta verk. Það væri heldur ekkert úr vegi að fá að auglýsa aðeins eftir afstöðu fólks úr VG og Sjálfstæðisflokknum. Hvað finnst mönnum um að hér sé að myndast svona ríflegur og fínn þingmeirihluti fyrir því að hækka veiðigjöld þótt það sé ekki innan ríkisstjórnarinnar?