um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Mig langar að vekja athygli á alvarleika þess að varpa hér sífellt fram stórum málum í pólitíkinni án fjárheimildar og fjármögnunar. Fjármálastefna stefnir nú þegar í að vera sprungin. Þetta er fyrir næstu fjögur árin. Stjórnarsáttmálinn endurspeglast alls ekki í fjármálastefnunni út þetta tímabil. Við erum í rúmlega 6% verðbólgu, það stefnir í 7% verðbólgu, stóru velferðarmálunum er flaggað hérna, stærsta PR-málið í síðustu kosningum, farsældarfrumvarpið, útfærsla á því er ekki einu sinni á dagskrá lengur. Það eru engin þingmál sem snerta ástandið í landinu í dag. Það mætti halda að það væri engin tilfinning, ekkert sans, fyrir stöðu margra hér í landinu, látum vera að nýtt þingmál hafi verið lagt fyrir. Hvar eru málin um húsaleigulögin t.d. sem átti að leggja hér fram? Þetta er tilbúið. Af hverju er þetta ekki einu sinni lagt fyrir þingið? Það er engin innstæða fyrir velferðarmálunum hérna í landinu og meira að segja þingmál utan þingmálaskrár, það er ekkert verið að tala um þessi stóru mál sem umlykja allt núna.