um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Það voru einhver mál sem ég taldi mig geta stutt á þeirri þingmálaskrá sem fyrir lá. Það voru m.a. lög um afglæpavæðingu, sem mér hugnaðist mjög vel, vitandi að úti í samfélaginu væri fólk að lenda á sakaskrá fyrir að hafa neysluskammta innan klæða. Mér fannst í raun algjörlega fáránlegt að lögin okkar virkuðu þannig. Annað er auðvitað þetta farsældarfrumvarp sem talað hefur verið um í mörg ár. Ætli Framsóknarflokkurinn hafi ekki náð hvað mestu fylgi út á það að leggja þetta til? Sveitarfélögin á Íslandi hafa verið á fullu við að búa sig undir að fara að vinna í samræmi við þau lög og það frumvarp. En miðað við það sem maður sér núna virðist málið bara ekki vera á dagskrá. Þá spyr maður: Á bara að skreyta sig fyrir kosningar?