152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:23]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. „Þau eru ekki nógu góð,“ gjammaði hæstv. innviðaráðherra af sínu yfirlæti í anda Framsóknarflokksins vegna umræðu um þingmál Flokks fólksins, ráðherra sem var rétt í þessu að afturkalla eigið frumvarp vegna leigubíla sem var svo illa unnið af hálfu ráðherra að hann treysti ekki fastanefnd Alþingis til að leiðrétta villurnar og þarf því að leggja það fram að nýju. Hvað eru ráðherrar Framsóknarflokksins annars að gera? Jú, hæstv. barnamálaráðherra hefur afturkallað annað mál sitt af tveimur á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra hefur ekki komið fram með þau þrjú mál sem áttu að vera komin inn fyrir lok janúar en hefur fellt niður þrjú af sjö málum. Ég held að Framsóknarflokkurinn (Forseti hringir.) ætti kannski að fara að bretta upp ermar og fara að sinna hér því sem þau eru kosin til.