um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Það var haft eftir hæstv. fjármálaráðherra í fréttum RÚV fyrir helgi að til skoðunar væru aðgerðir til að bregðast við verðbólgu. Hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra hefur kallað eftir slíkum aðgerðum, annaðhvort að bankarnir taki það einhvern veginn upp hjá sjálfum sér að styðja við skuldug heimili eða þá að tilfærslukerfunum og bankaskatti verði beitt. Verðbólga er núna komin yfir vel yfir 6%. Hæstv. fjármálaráðherra hefur skýlt sér á bak við það að ekki séu mörg heimili eða margir einstaklingar á vanskilaskrá. Ég velti því bara fyrir mér: Hvað þarf verðbólgan að verða mikil og hvað þurfa margir að lenda á vanskilaskrá áður en hæstv. ríkisstjórn hættir að skoða bara hlutina og bregst við og kemur hingað með einhver mál inn í þingið, fjármögnuð mál, til þess að styðja við viðkvæma hópa og þau heimili sem verða helst fyrir barðinu á hækkandi verðbólgu og vaxtastigi?