um fundarstjórn.
Herra forseti. Það er vinkill á þessu sem mig langar til að bæta við hérna sem varðar þau viðhorf sem endurspeglast í þessari framkomu ríkisstjórnarinnar, að leggja fram þessa málaskrá eins og hún er. Ekki eingöngu er þetta vanvirðing við borgarana, við íslenska borgara og aðra borgara sem hér dvelja, heldur er það vanvirðing við þingið sömuleiðis. Í stað þess að taka fyrir mál sem sátt er um, eða alla vega er sátt um í orði, svo sem afglæpavæðingu neysluskammta, og leyfa þinginu að afgreiða góð mál svo við getum náð einhverjum framförum í þessu samfélagi, þá er hér verið að leggja áherslu á mál, sem við ætlum að hjakka í aftur og aftur og áfram og áfram, sem vitað er að er ekki sátt um og verður ekki hleypt í gegnum þetta þing á auðveldan hátt. Það er bara svoleiðis. Þetta er vanvirðing við störf okkar, við hlutverk okkar, þá möguleika sem við höfum hér á löggjafarþingi Íslendinga til að bæta þetta samfélag og vanvirðing við fólkið í landinu sömuleiðis.