152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB.

[15:28]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Árið 2015 var lögð fram þingsályktunartillaga á þingi um að fela ríkisstjórninni að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB, um fulla aðild Íslands. Formaður VG, Katrín Jakobsdóttir, mælti fyrir tillögunni í fjarveru formanns Samfylkingarinnar, sem var fyrsti flutningsmaður, og sagði m.a. í flutningsræðu, með leyfi:

„Í þessu tilviki tel ég að lýðræðisrökin vegi þyngst, að málið sé af þeirri stærðargráðu og á því séu svo margar hliðar að eðlilegt sé að við leitum leiðsagnar þjóðarinnar og föllumst á að hlíta lýðræðislegri leiðsögn hennar.“

Ég er hjartanlega sammála orðum formanns VG og núverandi hæstv. forsætisráðherra. En nú var sams konar þingsályktunartillögu dreift hér í dag af þremur stjórnarandstöðuflokkum. Því leikur mér einfaldlega forvitni á að vita hvort hæstv. forsætisráðherra sé ekki örugglega enn þeirrar skoðunar að málið sé af þeirri stærðargráðu að eðlilegt sé að leita leiðsagnar þjóðarinnar.

Spurningin er því sáraeinföld: Styður ráðherra endurflutta þingsályktunartillögu Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu?