152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB.

[15:29]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður lítur um öxl og rifjar upp sögu okkar allt frá því að sótt var um aðild að Evrópusambandinu 2009. Raunar tel ég að sú vegferð hefði verið farsælli ef ráðist hefði verið í þjóðaratkvæðagreiðslu áður en sú umsókn var lögð fram. Ég ætla að segja það hér í þessum stól, og ég held raunar að ég hafi sagt það áður, að ég held að það hafi verið mistök hjá mér og öðrum þeim sem greiddu atkvæði gegn þeirri tillögu að ráðast í þjóðaratkvæðagreiðslu áður en sótt var um aðild. En þannig var það. Þá var það lykilatriði, í þáverandi stjórnarsamstarfi Vinstri grænna og Samfylkingar, að þessi umsókn yrði lögð fram og að ekki yrði ráðist í þjóðaratkvæðagreiðslu áður og við stóðum við það. Ég hef svo sem ekki skipt um skoðun á því að ég tel mjög mikilvægt að leita leiðsagnar þjóðarinnar í slíkum stórum málum. Ég tel, eins og ég sagði, að það hefði betur verið gert þannig 2009. En ég vil líka segja að mér finnst mikilvægt að hér á Alþingi liggi fyrir hver afstaða meiri hluta þingmanna er gagnvart því að fara í slíka vegferð, að sækja um aðild að Evrópusambandinu.

Ég sé að þetta mál er komið aftur á dagskrá, ekki síst vegna þróunar í alþjóðamálum. En ég ætla að líka að upplýsa það alveg heiðarlega að ég er þeirrar skoðunar að Íslandi sé vel borgið þar sem það er, að við eigum ekki að ráðast í það að fara inn í Evrópusambandið. Þá afstöðu hef ég mótað með mér í töluvert langan tíma vegna þess að ég tel einfaldlega að gallarnir séu miklu fleiri en kostirnir, þótt ég sé fyrsta manneskjan til að viðurkenna að þetta er ekki svart/hvítt mál.