þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB.
Herra forseti. Sama hvaða skoðun menn hafa á aðdragandanum síðast er aðildarumsókn, sem lögð var fram á Alþingi á sínum tíma, í fullu gildi. Hún hefur aldrei verið dregin til baka af Alþingi. En það er áhugavert að hæstv. ráðherra segi: Jú, það er mikilvægt að spyrja þjóðina en við þurfum samt að heyra hvað meiri hluta þingheims finnst um aðild. Þar er hún væntanlega að vísa til hins pólitíska ómöguleika sem hæstv. fjármálaráðherra hefur talað mikið um. Sjálf hlýtur hæstv. forsætisráðherra einhvern veginn að hafna svoleiðis kenningum vegna þess að hennar flokkur, sem er á móti þjóðaröryggisstefnunni og á móti aðildinni að NATO, gerir það samt að hluta af stjórnarsáttmálanum. Ég hlýt að ítreka spurningu mína. Spurningin er sáraeinföld og við hljótum, herra forseti, að geta krafist svara: Mun hæstv. forsætisráðherra styðja það að þjóðin fái að greiða atkvæði um hvort við höldum áfram aðildarviðræðum? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)