þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB.
Herra forseti. Í fyrsta lagi finnst mér reyndar ekki sambærilegt það sem hv. þingmaður segir hér um aðildina að Atlantshafsbandalaginu og aðildina að Evrópusambandinu því að sá er munurinn á að Ísland er aðili að Atlantshafsbandalaginu og hefur verið það frá stofnun þess. En hitt er allt önnur ákvörðun, að ákveða að fara aftur af stað í að sækja um aðild að ESB. Það er alveg rétt hins vegar sem hv. þingmaður benti réttilega á, að Alþingi dró aldrei þá umsókn til baka og var það mjög umdeilt á sínum tíma, m.a. af mér. Mér hefði þótt betri bragur á því að það hefði verið gert á þeim tíma og raunar er það svo, ef ég man rétt, að það er annar flokkur í stjórnarandstöðu beinlínis með tillögu um að draga umsóknina til baka af hálfu Alþingis og ef mig misminnir ekki er það Flokkur fólksins. Ég vil bara segja það heiðarlega hér að að mínu viti tel ég mikilvægt að það sé meiri hluti á þinginu til að fylgja eftir aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Ég hefði lagt á það áherslu ef sá meiri hluti er fyrir hendi hér á þingi að sá meiri hluti leitaði leiðsagnar þjóðarinnar áður en fram væri haldið.