laun forstjóra ríkisfyrirtækja.
Herra forseti. Ég ítreka þá skoðun mína að mér finnst ábyrgð þeirra sem leiða mjög mikil og ég held að við hv. þingmaður séum sammála um það. Hún spurði hér: Hvað hefur ríkisstjórnin gert hingað til? Ég nefndi niðurlagningu Kjararáðs sem var mjög mikilvægt skref á sínum tíma. Ég vil líka minna á að ekki er langt síðan hæstv. fjármálaráðherra sendi Bankasýslu ríkisins bréf vegna launaþróunar bankastjóra ríkisbankanna þar sem gripið var inn í þau mál. Ríkisstjórnin hefur því sýnt að hún vill tryggja að launaþróun toppanna eða æðstu stjórnenda hjá ríkinu sé ekki til þess fallin að auka á gliðnun í samfélaginu. Við eigum að gæta þess að launamunurinn verði ekki of mikill og ég held að við séum sammála um þau sjónarmið. Hins vegar er auðvitað mikilvægt að byggja allar ákvarðanir á gögnum og þess vegna hefur verið kallað eftir þeim.