152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

bráðamóttaka geðþjónustu.

[15:48]
Horfa

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (V):

Virðulegi forseti. Ef bremsurnar á bílnum mínum myndu bila og ég endaði á vegg þá yrði ég sendur rakleitt á sjúkrahús til aðhlynningar, en ef ég lendi á vegg andlega þá er staðan önnur. Andlegri heilsu er ekki gert jafn hátt undir höfði og líkamlegri og við sjáum það aftur og aftur. Við heyrum ítrekað sögur af fólki sem mætir á bráðageðdeild og segir: Ég er í lífsháska, ég þarf hjálp. En fær svarið: Komdu aftur á morgun. Hjá sumum þessara einstaklinga er enginn morgundagur. Ungt fólk er í sérstaklega slæmri stöðu. Það er á þeim aldri þar sem geðsjúkdómar koma yfirleitt fyrst fram, það er oft í námi með mjög skertar tekjur og þar af leiðandi ekki með aðgengi að styrktarsjóðum stéttarfélaga líkt og fólk á vinnumarkaði. Það myndi breyta öllu fyrir þennan hóp ef samið yrði við sálfræðinga um niðurgreiðslu þjónustu þeirra, eins og var heimilað með frumvarpi Viðreisnar sem varð að lögum í júní 2020, m.a. með atkvæði hæstv. heilbrigðisráðherra. Ég þori að fullyrða að einn stærsti hópurinn sem þarfnast þess að sálfræðiþjónusta verði gerð aðgengileg öllum, óháð efnahag, rétt eins og önnur heilbrigðisþjónusta, sé tekjulágt námsfólk á áhættualdri.

Þess vegna spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra: Hversu fljótt mun hann bæta bráðamóttöku geðþjónustu? Og hversu fljótt mun hann framfylgja vilja Alþingis og sjá til þess að sálfræðiþjónusta verði raunverulega tiltæk fyrir fólkið sem þarf á henni að halda þegar það þarf á henni að halda? Ég vona að svarið sé ekki: Kannski á morgun.