152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

bráðamóttaka geðþjónustu.

[15:52]
Horfa

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hreinskilin og góð svör. Það er mikilvægt að verið sé að vinna fullum fetum að bótum á þessu sviði af því að staðan er slæm, eins og hæstv. ráðherra sagði. Sérfræðingar eru á sama máli um að ástand biðlista í geðheilbrigðiskerfinu sé ólíðandi. Það var megininntakið á síðasta geðheilbrigðisþingi. Það er nefnilega ómetanlegt fyrir einstaklinginn og okkur sem samfélag að sjá til þess að öryggisnetið grípi fólk sem þarf á geðheilbrigðisþjónustu að halda. Við vitum hvað gerist ef við gerum ekkert. Við lítum á kostnað samfélagsins af andlegum veikindum, tapaðri vinnu, örorku og mannslífum. Þess vegna er ekki bara lífsnauðsynlegt að bregðast við, það er líka þjóðhagslega hagkvæmt. Það er þjóðhagslega hagkvæmt að spýta í lófana og hraða þeim viðbrögðum og aðgerðum sem unnið er að. Ég hvet hæstv. ráðherra til að gera það og svara því hversu fljótt hann sér fram á að geta það.