bráðamóttaka geðþjónustu.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni og ítreka þakkir fyrir að taka þetta mál hér upp. Það er fjölmargt sem ég gæti komið inn á, eins og í fyrri ræðu minni, um það sem vel hefur verið gert. En það er rétt sem hv. þingmaður kemur inn á í þessu brýna mikilvæga verkefni okkar, sem hefur tekið á sig ýktari mynd í gegnum faraldurinn, að biðlistarnir hafa lengst. Það er því mikið verkefni fram undan. Ég vildi að ég gæti staðið hér og svaraði einmitt þessari stóru spurningu, kannski kjarnanum í spurningu hv. þingmanns, hvort við ætlum ekki bara að gera þetta á morgun. En þetta er staðan. Við erum búnir að kalla fram stöðuna á þessum biðlistum til þess einmitt að nýta þá fjármuni sem eru til að semja við sálfræðinga og ná niður greiðsluþátttökunni þar og það renni þá til þeirra hópa (Forseti hringir.) sem eru í brýnustu neyðinni. Að því leytinu til er þetta mjög jákvætt innlegg.