skerðing strandveiðiheimilda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta er auðvitað viðvarandi viðfangsefni. Við erum núna með tiltekið skipulag að því er varðar ráðstöfun aflaheimilda í því sem hv. þingmaður nefnir hér og kallað er að jafnaði 5,3% hluti fiskveiðistjórnarkerfisins. Þar eru undir auðvitað ýmsir þættir sem hafa verið hugsaðir til að bæta jöfnuð að því er varðar búsetu og atvinnu. Þetta eru mismunandi aðgerðir og mismunandi ráðstafanir sem sannarlega koma niður með mismunandi hætti. Það er mjög mikilvægt að fara í saumana á því hvort þær ákvarðanir sem hafa verið teknar hér, sumar eru allt að því 20 ára gamlar, nái markmiðum sínum núna. Þannig að það sem við erum að gera er að við erum að fara í saumana á hverjum þætti þessa kerfis og skoða hvort við munum ná upprunalegu markmiði með ráðstöfunarúthlutuninni. Ég er þá að tala um byggðapottana, ég er að tala um línuívilnun, skelbætur og ég er að tala um strandveiðikerfið. Ég er sérstaklega meðvituð um hversu mikilvægar strandveiðiheimildirnar eru til að viðhalda byggðum víða um land og sá hluti kerfisins þurfti að líða fyrir samdrátt í veiðiráðgjöf í þorski núna um áramótin. Við horfum enn þá til þess að skiptimarkaðir gætu skilað einhverju inn í þennan hluta kerfisins. Það er þó ekki víst að svo verði. En í mínu embætti sem ráðherra sjávarútvegsmála kem ég til með að horfa sérstaklega til þessara ráðstafana.