skerðing strandveiðiheimilda.
Virðulegur forseti. Það er sannarlega rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns. Þarna kemur hann inn á þann þátt sem lýtur að svæðaskiptingunni og því sem eru í raun og veru bara hin náttúrulegu rök, mismunandi fiskigengd á mismunandi tíma ársins um leið og við erum með tiltekinn „rétt“ um 48 daga í lögum. Þetta eru sjónarmið sem kunna að togast á þegar það er ekki nóg í pottinum, þegar við höfum ekki ótakmarkaðar heimildir. Eins og ég heyri hv. þingmann draga fram í spurningu sinni þá er hann í raun og veru að spyrja: Ættu að gilda aðrar röksemdir um þennan hluta kerfisins en um stóra kerfið? Sú umræða kann að þurfa að eiga sér stað. En í lögunum eins og þau eru núna er um að ræða 5,3% af heildarráðgjöf hverju sinni og þess vegna verðum við samkvæmt lögunum að horfa til þess.