152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

áhrif stríðs í Úkraínu á matvælamarkað.

[16:04]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Matvæla- og fæðuöryggi, sem er ekki sami hluturinn, er auðvitað hluti af okkar þjóðaröryggisstefnu. Ein aðgerð sem þar heyrir undir mitt ráðuneyti er að skipuleggja viðmið fyrir nauðsynlegar birgðir til að tryggja lífsafkomu þjóðar á neyðartímum, og þá er ég ekki bara að tala um matvæli heldur líka hluti á borð við olíu og annað slíkt, hlífðarbúnað og lyf, viðhaldshluti í dreifikerfi raforku og fjarskiptakerfi o.s.frv. Þessi vinna stendur yfir og markmiðið með henni er að við setjum okkur ákveðin viðmið um það hvað eru nauðsynlegar birgðir undir hverjum þætti til að við getum tryggt þessa lífsafkomu. Þetta er gamalkunnug umræða, eins og hv. þingmaður þekkir, en fullkomlega nauðsynleg. Þessi mál eru kannski í mismunandi farvegi því að þau heyra undir mismunandi ráðuneyti, en ég held að samræmingin sé algjört lykilatriði hér.

Þegar kemur að því sem hv. þingmaður nefnir sérstaklega, þ.e. matvæli og aðföng, þá er staðan þannig að aðalritari Sameinuðu þjóðanna hefur beinlínis talað um að það stefni allt í heimskreppu þegar kemur að matvælum, ekki síst vegna korn- og hveitiframleiðslu og þar erum við Íslendingar viðkvæm fyrir því að við framleiðum einungis 1% af því korni sem við neytum.

Það er ekkert launungarmál að ég hef beitt mér fyrir því að við Íslendingar verðum í auknum mæli sjálfum okkur nóg þegar kemur að matvælaframleiðslu. Það var m.a. ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin réðst í það í fyrra að efla grænmetisframleiðslu. Það var m.a. þess vegna sem Matvælasjóður var settur á laggirnar. Við getum gert miklu betur í þessu, ekki bara þegar kemur að kjötinu, þar sem við erum í þeirri stöðu að búfjárrækt sér fyrir u.þ.b. 90% af því kjöti sem er neytt og 99% af mjólkurvörum kemur úr innlendri framleiðslu, en þegar kemur að annarri neysluvöru á borð við grænmeti og korn (Forseti hringir.) þá getum við gert betur. Augljóslega verðum við hins vegar ekki búin að rétta þann hlut fyrir árið 2023 svo að við séum algerlega raunsæ í þeim efnum.