áhrif stríðs í Úkraínu á matvælamarkað.
Frú forseti. Ég vil bara nefna að ég hef upplýsingar mínar auðvitað fyrst og fremst frá matvælaráðherra sem getur vafalaust gefið miklu betri upplýsingar. En eftir því sem staðan er metin, frá aðilum eins og bandaríska landbúnaðarráðuneytinu, eru töluverðar birgðir til af hveiti- og kornmeti. Ef stríðið dregst á langinn getum við hins vegar einmitt, eins og hv. þingmaður nefndi, farið að sjá breytingar á því árið 2023.
Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni hvað það varðar að hvetja bændur til dáða. Ég held að við getum gert mikið í því og ég veit að matvælaráðherra horfir til þeirra sóknarfæra sem eru í íslenskum landbúnaði. Ég nefni í því sambandi ekki bara það sem við getum kallað hefðbundnari greinar, þ.e. búfjárrækt, mjólkurframleiðslu, eggjaframleiðslu, þar sem yfirgnæfandi meiri hluti af því sem við neytum er innlent, heldur einmitt grænmetisframleiðsluna, þar sem við gáfum mjög hressilega í síðast, og kornræktina þar sem eru mikil tækifæri. Ég held að þarna séu vannýtt tækifæri fyrir Ísland til lengri tíma. En þetta ástand í heiminum minnir okkur líka á mikilvægi þessara greina fyrir öryggi þjóðarinnar. Ég held að þarna séu tækifæri og að það sé líka mikilvægt að bregðast við.
Má ég tala lengur, frú forseti, eða er þetta orðið ágætt? [Hlátur í þingsal.] (Forseti hringir.)
(Forseti (LínS): Þetta er orðið ágætt.)