152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.

418. mál
[16:23]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mikilvæga ræðu um einangrun og líka um það að það er hópur hér úti sem hefur ekki getað nýtt sér tæknina á sama máta og aðrir, sér í lagi fólk sem hefur ekki efni á því að kaupa sér snjallsíma, hefur ekki efni á því að kaupa sér spjaldtölvu eða annað. Mig langar að hvetja hæstv. heilbrigðisráðherra til að skoða hvað önnur lönd hafa verið að gera á þessu sviði vegna þess að ég veit til þess að það hafa verið verkefni í öðrum löndum sem hafa verið styrkt, jafnvel af tæknifyrirtækjum, til þess einmitt að útvega þessum hópum og öðrum jaðarsettum hópum aðgang að tækninni til jafns við aðra. Ég veit að t.d. í Bandaríkjunum er mögulega hægt að fá frítt internet fyrir fólk sem ekki hefur efni á því og annað slíkt.

Mig langaði líka að nefna annað mál sem hv. þingmaður nefndi sem er þekkingin eða það að kunna að nýta sér tæknina. Ég man eftir því að fyrir nokkrum árum síðan var ég að aðstoða í nýsköpunarhraðli sem heitir Snjallræði og þar kom einmitt nýsköpunarfyrirtæki sem hét Tæknivinir sem var nákvæmlega með þetta, að tengja eldra fólk og yngra fólk og fá yngra fólkið til að koma og hjálpa og kenna eldra fólkinu hvernig það gæti nýtt sér tæknina.