mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka enn og aftur andsvarið, þetta er allt hárrétt. Ég vil nota seinna andsvar mitt til að skerpa enn frekar á þeim hópi sem mun ekki ganga inn í þessar lausnir og það er ekki endilega fjárhagslegt dæmi. Við erum jú á öllum aldri, stundum vel yfir 100 ára, og það fólk sem er á efri árum núna er eins og við vitum alið upp í allt öðrum veruleika en þeir sem eru ungir og á miðjum aldri. Við verðum að passa okkur og ég hef bara virkilega áhyggjur að því að þessi hópur hreinlega gleymist. Hann er kannski með heimasímann og póstkassann en ekkert annað. Það er sá hópur sem við megum aldrei gleyma að taka upp tólið og hringja í og segja: Megum við koma í heimsókn, getum við hist, má ég koma og drekka með þér kaffi? En ég held að það hafi því miður gerst, ekki endilega að ég hafi einhver tilvik, ég er ekki að segja að fólk hafi gleymst en það hefur kannski liðið allt of langur tími þar til haft er samband við þetta fólk. Líka vegna þess að starfsfólk sem er að sinna þessu, hvort sem er hjá ríki eða borg, hefur auðvitað verið önnum kafið og staðið sig eins og hetjur, sérstaklega á þessu tveggja ára tímabili, og það er ekki hægt að passa upp á allt. En þessum hópi eldri borgara sem hefur bara heimasímann og póstkassann megum við aldrei gleyma. Og það er alveg sama þó að árin líði og við verðum orðin eitt stórt snjalllausnasamfélag, þá engu að síður gætu leynst þarna áfram fólk sem er ekki þar.