152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.

418. mál
[16:27]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að ítreka það að já, það er alltaf einhver hópur sem nýtir sér ekki tæknina og við þurfum að passa sérstaklega upp á þann hóp. Við þurfum líka að vita hversu stór sá hópur er og við þurfum að vinna sérstaklega í því að finna lausnir. Þá er ég ekki að meina tæknilausnir heldur finna lausnir á því hvernig við getum tryggt að fólk sé ekki skilið eftir eitt og einmana. Þar getum við hvatt hæstv. ráðherra til að gera ýmsa hluti en einna helst getum við hvatt okkur sjálf til þess að muna eftir að hringja í aldraða foreldra, aldraða afa og ömmur, aldraða langafa- og langömmur jafnvel, heimsækja þau, fara til þeirra, spila við þau eða kannski fá lítinn bita af súkkulaði eins og ég gerði oft í gamla daga sem krakki. Við megum ekki gleyma því í öllu því stafræna umhverfi sem við búum í að við þurfum enn þá að geta lyft upp símanum eða farið í heimsókn. Þar getum við ekki skammast við hæstv. ráðherra heldur okkur sjálf. Við þurfum einfaldlega að muna að leggja okkar af mörkum til að skilja engan eftir.