152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.

418. mál
[16:38]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Hv. þingmaður benti á mikilvægan hlut varðandi heilbrigðistækni. Hafandi unnið fyrir heilbrigðistæknifyrirtæki fyrir — já, nú fer maður að verða gamall — tæpum 30 árum síðan, þá er því miður enn þá eitt ákveðið vandamál sem frumkvöðlar í heilbrigðistækninni eiga við hér á landi. Það er að það er oft auðveldara fyrir frumkvöðla að fara með tæknilausnirnar sínar, nýsköpunina sína, til útlanda en að fá að prófa hana eða nýta hana hér á landi. Við höfum séð t.d. fjarheilbrigðisþjónustukerfi sem blómstrar erlendis en lendir í alls konar vandræðum hér heima. Ég man að fyrir 30 árum endaði það einmitt að fyrirtækið sem ég var að vinna fyrir þá gaf lausnina — ekki til spítalans heldur til félagasamtaka sem síðan gáfu hana til spítalans af því að spítalinn vildi ekki taka við henni, af því að þá nýttist ekki eitthvað annað betur. Mig langaði því að heyra hvaða aðra hluti tengda heilbrigðistækni hv. þingmaður hefði séð að þyrfti að laga varðandi stefnur.