mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Forseti. Vegna þess að ég veit að hv. þingmaður hefur stundum velt því fyrir sér hvernig ríkisstjórnin kýs að varpa ímynd sinni fram í samfélagið, hvernig hún markaðssetur sig, þá langar mig rétt upp á grínið kannski að benda á að í tillögutextanum sjálfum, því sem á að verða samþykkt þingsályktun Alþingis, er tvisvar sinnum talað um stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Það er sagt að það skuli skipa verkefnisstjórn samkvæmt stjórnarsáttmála sem kynntur var 26. nóvember, stendur hérna á fyrstu síðu, og síðan á þriðju síðu er aftur vísað til þess að verkefnisstjórnin þurfi að starfa samkvæmt stjórnarsáttmála ríkisstjórnar þessara þriggja flokka. Þegar ég rak augun í þetta þá velti ég fyrir mér hvort þetta væri kannski Íslandsmet, jafnvel Norðurlandamet í sjálfhverfu ríkisstjórnar, að vilja negla stjórnarsáttmálann inn í þingskjal sem á að gilda til 2030, sem á að gilda alla vega fimm árum eftir að ríkisstjórnin er farin frá völdum.
En það var ekki þetta sem ég ætlaði að gera hér að meginumtalsefni mínu heldur það sem hv. þingmaður nefndi um kynjabreytuna í heilbrigðisþjónustu almennt. En þá hljótum við líka að nefna kynjabreytuna varðandi kjör starfsfólks. Á það hefur verið bent að ekkert sé komið inn á þann hluta starfsaðstæðna fólks í heilbrigðiskerfinu vegna þess að ráðuneytinu þyki þetta ekki vera vettvangur til þess. Af hverju ekki? Hvað með þá staðreynd að fyrir liggur samþykkt þingsályktun um þjóðarsátt um bætt kjör kvennastétta? Þó að þessi tillaga hér sé kannski ekki rétti vettvangurinn til að leysa þau mál, hefði ekki mátt nefna þann skýra vilja Alþingis frá árinu 2018, bara svona rétt í framhjáhlaupi? Það er stóra breytan þegar kemur að því að tryggja þetta markmið um fólkið í fyrirrúmi, sem er hér í 3. tölulið (Forseti hringir.) en ekki það að stéttarfélögin megi koma að úrvinnslu aðgerða. (Forseti hringir.) Ég held að lögin skipti meira máli.