mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Virðulegi forseti. Já, hér er stefna og orð eru sannarlega til alls fyrst. Einhvers staðar þarf að byrja. Góð stefna er sannarlega gulls ígildi en verði ekki gerð góð áætlun, framkvæmdaáætlun, í kjölfarið er góð stefna bara ónýtt og gagnslaust plagg.
Mig langar að nefna nokkra punkta sem geta þá mögulega orðið veganesti inn í aðgerðaáætlun og byrja á að nefna að það er gríðarlega mikilvægt að ríkið sinni hjúkrunarþjónustu við yngra fólk sem þarf umönnun allan sólarhringinn. Í dag eru um 140 manns yngri en 67 ára á hjúkrunarheimilum en þyrftu að vera í sérsniðnu húsnæði og úrræði. Á meðan bíður hópur fólks eldra en 67 ára eftir þessum plássum, jafnvel á sjúkrahúsi. Einnig þarf að huga að þjónustu við sértæka hópa sem þurfa á þjónustu hjúkrunarheimila að halda, svo sem fólk með geðfötlun, fíkniefnavanda og fleiri með vanda af ýmsu tagi. Þjóðin er að eldast og það hefur verið lengi vitað. Þá er spurt: Hvar er fyrirhyggjan? Hvar er forsjáin? Hvar er heildarhugsunin? Af hverju erum við í þessari stöðu?
Þessi hópur, sem aðrir viðkvæmir hópar eins og börnin sem sitja föst á biðlistum, hefur einfaldlega ekki verið í forgangi hjá þessari ríkisstjórn. Hvað með þá sem þrá að vera eins lengi heima og mögulegt er? Til að það sé hægt þarf heimahjúkrunin að vera til staðar og þar er aftur komið stórt vandamál. Það skortir sárlega hjúkrunarfræðinga í öll störf. Það hefur algerlega mistekist að laða hjúkrunarfræðinga til starfa og þá hreinlega bara vantar. Þeir eru ekki nógu margir. Það má bæta því við að til að efla megi heimaþjónustu er mikilvægt að auka flæði í þjónustukeðju aldraðra. Bjóða þarf upp á fjölbreytt þjónustuúrræði, efla samvinnu þvert á stofnanir, auka læknisþjónustu, bæði frá heilsugæslu og Landspítala sem og í heimahúsum. Skerpa þarf á ferlum þjónustu sem og efla enn frekar að hægt verði að veita auknar meðferðir í heimahúsum með aðkomu þverfaglegra teyma sem og bráðaþjónustu aldraðra.
Þá langar mig að víkja að því sem bíður okkar allra. Hvað skyldi það nú vera? Það er dauðinn. Það vill svo til að fjölmarga langar til að fá tækifæri til að deyja heima. Áætlað er að um 75% allra sem nálgast lífslok þurfi líknarmeðferð. Mikil fjölgun aldraðra og fjölgun langveikra gefur sterka vísbendingu um að mun fleiri en áður muni þurfa nálgun líknarmeðferðar. Þess vegna er mikilvægt að stofna líknarteymi innan heimaþjónustu til að veita megi öldruðum og langveikum einstaklingum aukna þjónustu með það að markmiði að fleiri geti dvalið lengur heima og fengið að deyja heima. Þetta þarf að gera svo að tryggja megi öldruðum örugga líknar- og lífslokameðferð á heimili. Það þarf t.d. fjármagn til sólarhringsumönnunar hjúkrunarfræðinga, líknarmeðferðar í heimahjúkrun með þekkingu og reynslu í líknarmeðferð, læknisþjónustu líknaröldrunarlæknis og bráðalíknarrýmis á hjúkrunarheimili þar sem skjólstæðingar heimahjúkrunar hafi forgang. Þetta yrði skammtíma- og sólarhringsþjónusta fyrir t.d. hruma einstaklinga úr heimahúsi sem þyrftu innlögn vegna breytinga á líðan, félagslegra aðstæðna, hratt vaxandi hrumleika, yfirvofandi andláts. Jafnframt væri þar hægt að grípa inn í og fyrirbyggja ástand sem blasir við, t.d. með því að gefa vökva og lyfjagjafir í æð, blóðgjafir, yfirfara lyf eða veita annars konar meðferð eða eftirlit. Þetta úrræði sárvantar. Það þyrfti að vera óháð því hvort viðkomandi væri með samþykkt færni- og heilsumat á hjúkrunarrými eða samþykkta umsókn um hvíldarinnlögn. Þessi rými þyrftu aukna mönnun miðað við hvíldarinnlagnarrými og ekki væri úthlutað fyrir fram eins og hefðbundin hvíldarinnlagnarrými.
Þess utan er eitt af brýnu verkefnunum í öldrunarþjónustu að fjármagn verði sett í að gera samþætta heilsuskrá einstaklings á landsvísu, aðgangsstýringu sem styður við teymisvinnu, sem dæmi, til að auka samfellu, traust og öryggi, dregur úr sóun og tvíverknaði, er forsenda samþættingar þjónustu á mismunandi þjónustustigum; heilsuskrá einstaklings á landsvísu.
En aftur til lífsins. Þegar komið er fram á þessi ár er svo mikilvægt að hafa fjölbreytni. Við erum ólík og við munum þegar þar að kemur og aldurinn færist yfir líka vera ólík, með ólíka færni, ólíkan kraft, ólíkar aðstæður, alls konar. Við getum ekki sett þennan hóp allan undir einn hatt. Það eru fjölmargir sem þrá að fá að vera í þjónustukjarna þar sem í nágrenni er öll þjónusta, aðstæður, græn svæði, sérstaklega hugað að lýsingu, strætóstoppistöðin sérstaklega björt og aðlaðandi og svona mætti lengi telja, að fólk geti labbað út og náð í það sem það þarf. Við eigum svona fordæmi og erum oft að tala um það, á Sléttuveginum sem dæmi. Það er akkúrat þannig sem mætti vera víð og dreif um borgina, í úthverfum og bara hvar sem hægt væri að koma því niður en gæta á sama tíma að blöndun.
Að lokum kannski langar mig bara að reyna að draga saman samt hver helsti vandinn er í þessu því að þetta snýst allt um að fara í aðgerðir til að fjölga heilbrigðisstarfsfólki og sjá þá til þess að háskólar geti tekið fleiri nema í deildirnar og hafi pláss á heilbrigðisstofnunum til að taka fleiri í verknám. Ef okkur vantar þetta fólk, hjúkrunarfólk og fólk sem er með færni og hæfni, þekkingu og reynslu til að sinna þessum málum, þá erum við bara í slæmum málum hvert sem litið er. Það alveg sama hvaða draumsýn við höfum í þessu sambandi. Hér er ég að tala um svæði sem verður að höfða til eldri borgara og hvetja til útivistar og tómstunda. Það er hægt að sjá fyrir sér, í draumsýn sennilega eða það blasir kannski ekki alveg við virðist vera, ekki alla vega samkvæmt þessu, nema þessi orð á blaði verði að veruleika. En það eru kannski ekki allir bjartsýnir í ljósi síðustu ára með sömu ríkisstjórn. Kannski verðum við bara að fá dreyma áfram og það er vont. Það er vont fyrir þá sem bíða og komast ekki heim til sín eða hafa ekki heimili til að fara til því að þar er ekki fólk til að aðstoða.
Hér er stefna og ég tek undir það sem hefur komið fram hjá öðrum hv. þingmönnum sem minntust á það að þetta er kannski nokkuð endasleppt. Ég vænti þess að hæstv. ráðherra eigi eftir að koma á eftir og fara í gegnum það sem búið er að ræða hér og svara og kannski hjálpa okkur til að fá meiri trú og traust á þetta plagg. Það er allt of oft sem maður horfir á fagrar og flottar og háfleygar stefnur hér og þar og alls staðar og ríkisstjórnin er sérlega góð í að búa þær til, flottar stefnur, alveg fagurgalinn út í eitt. En hvað svo? Mun eitthvað af þessu sem ég hef verið að lesa upp, sem ég veit að bráðvantar og þrá er eftir, verða að veruleika næstu fjögur árin? Eða stöndum við hér aftur eftir 10–15 ár og erum að tala um sama? Stórt er spurt.