mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Virðulegi forseti. Já, stórt er spurt. Til hvers erum við að þessu? Hér er talað um aðgerðir sem falla undir stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Ég velti því fyrir mér í samhengi við það sem hv. þingmaður var að ræða hér áðan, hvort þetta verði að veruleika, því að ég átta mig ekki alveg á því hvar þessi tillaga fellur inn í fjármálastefnu stjórnvalda. Veruleikinn er sá að það gerist ekkert án þess að það sé fjármagnað og það eru ítrekuð tilvik þess að hlutir hafi runnið í gegn ófjármagnaðir.
Mig langaði að setja þetta í smá samhengi. Þetta er nefnilega önnur tillagan sem kemur frá ríkisstjórninni eða hvað á ég að segja, er rædd um framtíðarsýn sem snýr að því að bæta kerfið. Við höfum mikið heyrt frá ríkisstjórninni að það eigi að fara í bætur á almannatryggingakerfinu, t.d. var neitað að stöðva kjaragliðnun milli almenna markaðarins í launum og þeirra sem eru á örorku- og endurhæfingarlífeyri og ellilífeyri vegna þess að það átti að bæta almannatryggingakerfið. En þetta eru risabútar í velferðarþjónustunni okkar, þetta kostar alveg rosalega mikið en samt var ríkisstjórnin bara fyrir nokkrum vikum að samþykkja rekstraráætlun sem gerir ráð fyrir viðvarandi halla á ríkissjóði og miklu útgjaldaaðhaldi. Það er ekki vegna þess að ekki sé hægt að ráða við útgjöldin í kerfinu okkar. Það er vegna þess að hér hefur verið stunduð markviss vanfjármögnunarstefna undanfarinn áratug sem gerir okkur ótrúlega erfitt fyrir.
Staðreyndin er sú að árið 2026, undir lok kjörtímabils þessarar ríkisstjórnar, munu tekjur ríkissjóðs vera þær lægstu á öldinni sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Það er hápólitísk stefna sem er verið að stunda hérna í grunninn, þróun sem hefur farið fram hjá mjög mörgum og er sjaldnast talað um. Síðan eru lagðar fram tillögur eins og þessi hér, sem er tala á yfirborðinu um hluti sem hefur reynst og mun reynast, meðfram þessari pólitísku stefnu, mjög erfitt að fjármagna af því að búið er að veikja grunnstoðir hins opinbera.
Síðan er næsta spurning hvernig svona áætlun skilar sér til sveitarfélaganna af því að mörg þeirra eru nú þegar að greiða tugi milljóna króna með þjónustu við aldraða þrátt fyrir að sú þjónusta sé ekki lögbundin. Ríkið hefur, eins og með svo marga aðra málaflokka, hreinsað borð sitt og leggst nú ýmis þjónusta, lögbundin eða ekki, með auknum þunga á sveitarfélögin. Svo er ríkisstjórnin oft að benda á fólk í sveitarstjórn eins og það kunni einfaldlega ekki að reka sitt batterí.
Ég hef heimsótt fólk úti um allt land undanfarnar vikur. Það heyrist mjög víða það sama. Það eru áhyggjur af dvalarheimilum og hjúkrunarheimilum á svæðinu, að þjónustan hverfi af því hún er vanfjármögnuð. Hér er talað til að mynda í þessari tillögu um að endurskoða fjármögnunarkerfi vegna dvalar og langtímaumönnunar á hjúkrunarheimilum. Gott og vel, það hljómar frábærlega. Hér fyrir jól var settur aukamilljarður inn í þessa þjónustu en við vitum að það vantar marga milljarða til viðbótar. Og hvaðan eiga þeir fjármunir að koma? Það er ekkert svigrúm í núverandi fjármálastefnu stjórnvalda þannig að ég velti því bara fyrir mér hvernig þessi aðgerðaáætlun mun birtast í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar eftir nokkrar vikur. Ég minni á orð fjármálaráðs í þessu samhengi sem birtust meðfram fjármálastefnunni, að það er ekki samhljómur til staðar milli stjórnarsáttmála og fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar og þetta er bara annar málaflokkur sem er dæmi um það.
Það er svo margt sem er hægt að skoða í þessari tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030 sem er augljóslega til þess fallið að auka útgjöld, með leyfi forseta:
„Aukið verði við sérstakan stuðning og úrræði við aðstandendur sem sinna umönnun.“
Aftur, með leyfi forseta:
„Aldrað fólk hafi aðgang að þjónustu með velferðartækni óháð búsetu. […] Fjármögnunarkerfi vegna dvalar og langtímaumönnunar á hjúkrunarheimili verði endurskoðað. […] Reglulegt gæðaeftirlit verði með öllum hjúkrunarheimilum á Íslandi.“
Hér er talað um að það þurfi að fjölga fagmenntuðu fólki í starfsliði hjúkrunarheimila. Eitthvað kostar það nú, virðulegi forseti. Enn fremur segir hér, ég er komin neðar í áætluninni, með leyfi forseta:
„Unnið verði áfram að því að byggja upp og fjölga þverfaglegum teymum á fyrsta og annars stigs þjónustustigi …“
Eitthvað kostar þetta nú. Svo segir í lokin, alveg í lokin, að mat á þessum fjárhagslegu áhrifum fari fram þegar aðgerðaáætlunin er farin í mótun, einhvern tíma síðar. Ég myndi bara vilja fá að vita hvenær þetta á að liggja fyrir. Er það eftir að þessu kjörtímabili er lokið? Verður þetta ekki að veruleika innan næstu þriggja ára? Vegna þess að það er ekkert svigrúm fyrir þetta í fjármálastefnu stjórnvalda, það er bara þannig. Það er 8 milljarða kr. svigrúm til útgjaldaaukningar á hverju ári í fjármálastefnu stjórnvalda, 8 milljarða, það er nú bara ígildi þess sem vantar inn í málaflokk fatlaðra hjá sveitarfélögunum.
Í greinargerðinni er talað um að þetta sé fimm ára áætlun. Mögulega á aðalþunginn að koma eftir þrjú ár þegar þessu ríkisstjórnarsamstarfi er lokið. Þá kannski fæst fjármagn í þetta, ef við fáum nýja ríkisstjórn sem er tilbúin að fullfjármagna ríkissjóð og skilur hvað það kostar að reka velferðarkerfi. Mig grunaði reyndar svo sem þegar ég las fyrstu fjárlögin frá þessari ríkisstjórn að það væri ekki mikil innstæða fyrir stóryrtum loforðum í sáttmála en svo koma hér stórar aðgerðaáætlanir sem bera með sér einhverja stefnubreytingu. En það er bara ekkert sem bendir til að fjármagnssvigrúm sé fyrir þessu.
Mig langar að fara aftur í þessa 8 blessuðu milljarða, sem er útgjaldasvigrúmið hjá ríkisstjórninni á ári hverju. Setjum þetta bara í smá samhengi við hvað er í gangi í hagkerfinu í dag. Viðbótarverðbólga í fyrra var rúmt 1%, þ.e. spáð var í fjárlögunum að hún yrði 3,2% og hún var 4,4%. Bara þessi hækkun, það að verðbólga hafi verið 1% hærri en ríkisstjórnin var að vonast eftir, gerði það að verkum að aukakostnaður ríkissjóðs var 8,6 milljarðar kr., 1% í aukaverðbólgu. Nú þegar erum við komin á þann stað að verðbólga er komin langt umfram það sem við var búist. Við vorum að samþykkja fjáraukalög fyrir jól þar sem settir voru aukalega 9 milljarðar til þess að vinna upp verðbólguna í fyrra. Hver er staðan núna? Við vorum að sjá fjáraukalög koma inn í þingið þar sem ekki er gert ráð fyrir neinum fjárútlátum. Það er bara einhver tæknilegur fjárauki. Hvað hefur gerst síðan fjárlögin voru sett 2022? Verðbólguspár hafa rokið upp. Seðlabankinn spáði í febrúar að verðbólga yrði 5,3% á árinu, það var í febrúar. Sú spá er algjört vanmat miðað við þróun síðustu vikna. Það er samt þessi 5,3% verðbólga, 2% hærri en ríkisstjórnin er að gera ráð fyrir á þessu ári. Bara þessi 2% eru a.m.k. 10 milljörðum meira í aukaverðbólgukostnað. Þessi fjármálastefna er algerlega sprungin og það er engin innstæða fyrir neinum útgjöldum, hvað þá betrumbótum í kerfinu. Ég velti því fyrir mér hvar þessi aðgerðaáætlun passar inn í þetta allt saman.
Ég velti því líka fyrir mér hvernig það er eiginlega í þessu ríkisstjórnarsamstarfi, hvort það séu einhverjir aðrir en hæstv. fjármálaráðherra sem séu meðvitaðir um hvaða pólitík er verið að stunda hérna. Því hérna hefur verið stunduð pólitík vanfjármögnunar í að verða áratug. Tekjur ríkissjóðs, ég endurtek, ég þreytist ekki á að endurtaka þetta, sem hlutfall af landsframleiðslu hafa ekki verið lægri, undir lok þessa kjörtímabils, á öldinni. Það virðist vera ein stefna rekin í fjármálaráðuneytinu af flokki hæstv. fjármálaráðherra og hinir tveir flokkarnir í stjórn telja sig vera í velferðarpólitík en hér er því miður engin innstæða fyrir velferðarmálum. Fréttirnar eru þær að það er engin innstæða í þessari fjármálastefnu fyrir velferðarmálum. Það er engin innstæða fyrir svona aðgerðaáætlun. Ég veit eiginlega ekki hvort er verra, að hæstv. ráðherrar Framsóknar og Vinstri grænna viti af þessu og láti eins og ekkert sé eða átti sig ekki á því hvað er að gerast í fjármálaráðuneytinu.