mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Fjárlög ríkisins eru lög en fjárhagsáætlun sveitarfélaga er það ekki. Við sjáum það oft í samskiptunum að ríkið neitar. Við getum bara nefnt NPA-samningana. Það er sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga að veita slíka samninga en ríkið, bara af því að þetta var ekki í fjárlögum, neitaði og eitt sveitarfélag var bara dæmt til að gera þetta. Þetta eru bara skrýtin samskipti þegar þetta þarf að vera með þessum hætti af því að hér er verið að setja lög og hrósa sér af því að það sé verið að styrkja þjónustu við, í þessu tilfelli við fatlað fólk, eða börn eða hverja sem er, en síðan fylgja ekki peningar, eins og hér hefur verið bent á. Það er búið að samþykkja sálfræðifrumvarp en það eru bara ekki samþykktir peningar með því. Þetta eru náttúrlega algjörlega forkastanleg vinnubrögð að haga sér með þessum hætti.
Þetta snýst líka um forgangsröðun. Í þessu erum við að forgangsraða eins og hér hefur verið nefnt, í þágu velferðar. Ætlum við að standa með fólkinu okkar og sinna þeim þörfum sem íbúar, hver og einn hefur og þeirri þjónustu sem hver og einn þarf á að halda? Ég er ekkert viss um að við séum að gera það í öllum tilfellum. Svo má líka velta fyrir sér: Er rétt að einhverjir einstaka málaflokkar séu bæði á hendi sveitarfélaga og ríkis? Er ekki bara rétt að þetta sé annaðhvort hjá ríki eða sveitarfélögum? Ég veit það ekki. En þetta eilífa karp um það hver á að gera hvað er bara óásættanlegt fyrir þá sem bíða eftir þjónustu sem opinberir aðilar eiga og ber skylda til að veita.