mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Virðulegi forseti. Já, ég tek heils hugar undir allt sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson hefur sagt. Það er ekki glæsileg framtíðarsýn ef maður setur sig inn í hana. Það er eiginlega betra, liggur við, svona fyrir sálina, að gera það bara ekki. En þetta lítur ekki vel út og það er náttúrlega bara sorglegt þegar ungt fólk fer og menntar sig til starfa, eins og t.d. til hjúkrunar- eða sjúkraliðastarfa eða vinnu á rannsóknarstofum eða hvað sem er, og gerir það af áhuga en svo fer það í önnur störf, gefst upp. Það er náttúrlega bara ávísun á mikla erfiðleika og slæmt ástand til framtíðar. Hjúkrunarfræðingar eru víst mjög eftirsóttir sem flugfreyjur og við hljótum a.m.k. að geta náð að jafna það svo það sé ekki freistingin. En það þarf að tryggja mönnun. Það er ekki nóg að fá fólk til að mennta sig í þessu, að fá ungt fólk til að mennta sig sem heilbrigðisstarfsmenn, það þarf að tryggja að störfin séu aðlaðandi þegar á hólminn er komið og fólk gefist ekki bara upp á fyrsta eða öðru eða þriðja ári. Það er í rauninni það sem skiptir gríðarlega miklu máli.