mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir greinargóða ræðu. Mig langaði að spyrja hv. þingmann svipaðrar spurningar og ég spurði hv. þm. Guðbrand Einarsson áðan, um hvernig ástandið er í þjónustu við aldraða á Suðurlandi. Hv. þingmaður talaði um hreppaflutninga, að verið væri að fara með fólk frá Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu yfir á Suðurlandið og eflaust kæmi mér ekkert á óvart að innan þess svæðis væru hreppaflutningar líka í gangi. Það eru vandamál uppi meðal sveitarfélaga og meðal eldra fólks á þessu svæði við að fá þjónustu í sinni heimabyggð eins lengi og það getur. Það að flytja fólk hreppaflutningum ætti ávallt að vera síðasti valkosturinn en maður hefur heyrt um að þó nokkuð margt fólk af höfuðborgarsvæðinu hafi verið flutt á svæði á Suðurlandi af því að öll aðstaða á höfuðborgarsvæðinu er orðin full. Hvað getum við gert og hvernig er ástandið á Suðurlandi? Hvað þarf að bæta? Stórt er spurt.