152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.

418. mál
[18:16]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir andsvarið. Stórt er spurt, það lá við að það sæist undir hælana mér út. Suðurland er stórt og ástandið er mismunandi í kjördæminu eftir því hvar borið er niður. Ég held samt að það sé hvergi alveg eins og best verður á kosið. Það eru þéttbýl svæði þar sem ástandið virðist vera mjög slæmt, það eru þéttbýl svæði þar sem það virðist vera betra og síðan eru það sveitirnar. Hvað þarf að gera? Nú erum við kannski komin út fyrir það að ræða öldrunarþjónustu þó að þetta skipti máli þar líka, en það vantar t.d. heimilislækna víða úti um land. Það koma nýir og nýir læknar og fólk segir: Ja, við erum alltaf að endurtaka sömu söguna aftur og aftur. Við hittum aldrei sama fólkið, við erum alltaf á núllpunkti gagnvart öllum sem við hittum. Það er því margt sem þarf að laga. En svo má heldur ekki gleyma því að það er líka verið að reyna að gera góða hluti. Engu að síður er staðan alls ekki nógu góð og á sumum stöðum í Suðurkjördæmi er hún alveg skelfileg. Það þarf því heildstæðar lausnir og það þarf að laða fólk til starfa á þessum stöðum og úti á landi líka til þess að fólk eigi kost á mannsæmandi heilbrigðisþjónustu sama hvar það býr.