152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.

418. mál
[18:20]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að allur sparnaður í heilbrigðisþjónustu komi alltaf niður á okkur síðar ef ekki er gripið inn í. Ég held að það séu algild sannindi að því fyrr sem gripið er inn í þeim mun minni verði vandinn, þeim mun betra verði að koma í veg fyrir eitthvað sem kannski verður þá aldrei en gæti orðið stórt ef ekki væri gripið inn í. Ég held að það sé alltaf þannig. Ég held að við spörum aldrei á því að sinna ekki heilbrigðisþjónustu. Ég held að það sé það versta sem við getum gert. Það er skammtímasparnaður í besta falli en kemur bara niður á okkur síðar. Þá náttúrlega erum við komin að umræðum um það t.d. að það er verið að spara með því að vera með biðlista í mjaðmaaðgerðum eða hverju sem er. Er það sparnaður? Það er ekki sparnaður. Það er bara tekið úr öðrum vasa, eins og það er kallað, en er í raun sami vasi, vegna þess að allt er þetta sami vasinn, kemur bara annars staðar frá — kostnaðurinn sem því fylgir í vinnutapi eða lyfjakostnaði eða öðru slíku svo ekki sé talað um mannlegar þjáningar. Ég held því að við eigum aldrei að spara í heilbrigðisþjónustu, það er síðasti staðurinn. Ég held líka að sátt sé um það og við getum öll verið sammála um að heilbrigðisþjónusta er eitthvað sem þú vilt hafa í lagi. Hvort sem við lendum sjálf í einhverju eða einhver nákominn okkur þá viljum við geta treyst því að gripið sé utan um okkur og við fáum bestu þjónustu sem hægt er að fá.