heilbrigðisþjónusta.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir mjög góðar spurningar. Þetta eru akkúrat spurningar sem vöknuðu. Það að koma þessu að í frumvarpinu er ekki alveg einfalt með opinbera stofnun. Það er rakið að hluta í greinargerð hver sagan hefur verið frá því að við lögðum stjórnir ríkisspítalanna niður og svona til að skýra betur hlutverk og ábyrgð forstjóra, sem tengist síðustu spurningunni um samspil forstjóra og stjórnar. En ég ætla að byrja á fyrstu spurningunni um fulltrúa starfsfólks og af hverju fulltrúar starfsmanna hafa ekki atkvæðisrétt. Þetta er mjög góð spurning. Ég held að það sé í fyrsta lagi alveg nauðsynlegt að starfsfólk eigi fulltrúa í stjórn og þetta þekkist víða á Norðurlöndunum. Þeir eru hugsaðir þannig að þessi faglega rödd starfsfólksins sé inni í umræðu stjórnar um mikilvæg málefni. Það gæti hins vegar orðið snúið ef við leggjum þá ábyrgð á þessa tvo fulltrúa að greiða atkvæði af því að það er allt eins víst, sérstaklega þegar það eru stórar ákvarðanir, að það sé ekki eining á jafn stórum vinnustað um tilteknar ákvarðanir. Hins vegar verður röddin að heyrast. Þannig taka starfsmennirnir þátt í ákvarðanatökunni án þess að greiða atkvæði. Það er auðvitað hugsað þannig líka að þeir séu talsmenn inn á gólfið fyrir þeim ákvörðunum sem eru teknar ásamt forstjóra og njóti þannig stuðnings, (Forseti hringir.) þ.e. forstjóri njóti þannig aukins stuðnings við að framkvæma það sem ákveðið hefur verið.