152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[18:53]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svörin. Kannski nær hæstv. ráðherra að koma að svörum varðandi samspil milli forstjóra og stjórnar. Mig langaði einmitt í seinna andsvari að tala um að fjallað er um að forstjóri þurfi að bera veigamikil atriði undir stjórnina og er tekið eitt dæmi, ef ég las það rétt, um t.d. hvaða aðgerðum hefði átt að hætta í Covid. Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann gæti komið nokkur dæmi frá undanförnum árum þegar við höfum verið að eiga við Covid, hvað gæti verið skilgreint sem mikilvægt atriði sem hefur verið borið undir stjórn.