152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[18:58]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Viktori Stefáni Pálssyni fyrir mjög góðar spurningar. Fyrst um notendaráðið: Í samráðsgátt kom fram mikið ákall um að notendur ættu aðkomu að stjórn. Þetta þekkist jafnframt frá þeim sjúkrahúsum sem við skoðuðum á Norðurlöndum. Þetta þekkist á Karólínska sjúkrahúsinu. Það er auðvitað hægt að velja einhverjar leiðir. Eins og þetta er sett inn hér í 4. gr. þá er það rétt að áformað er að setja á sérstakt notendaráð. Fjöldi sjúklingasamtaka er svo mikill og svo erum við með regnhlífarsamtök sem halda utan um öll þau fjölmörgu sjúklingasamtök. Ef við ætluðum að taka bara einn fulltrúa í stjórn væri það býsna mikið. Við erum að tala um lýðræði í aðkomu að stjórn, af því að við leggjum áherslu á að notendur eigi rödd og komi að veigamiklum ákvörðunum sem eru teknar sem snúa beint að þjónustunni. Það er aðeins komið inn á þessi samskipti hér í frumvarpinu en það er ekki gert ráð fyrir því, það er rétt sem hv. þingmaður segir, að þeir eigi einn fulltrúa í stjórn. Ég held að þetta sé ágætisfyrirkomulag. En ég hlakka svolítið til að sjá þessa umfjöllun í velferðarnefnd, þau sjónarmið, hvernig þessu verður best fyrir komið, en þetta er fyrirkomulag sem þekkist. Hv. þingmaður var síðan með aðrar spurningar, virðulegur forseti, hann fylgir þeim kannski eftir í seinna andsvari.