152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[19:00]
Horfa

Viktor Stefán Pálsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Takk fyrir svörin. Seinni spurning mín er hvort ekki sé tilefni til að útfæra með einhverjum hætti sambærileg sjónarmið og gilda um þessa stjórn, sem ég held að séu bara til bóta, þannig að stjórnir yrðu yfir öðrum heilbrigðisstofnunum. Þá er ég fyrst og fremst að horfa til þeirra heilbrigðisstofnana sem eru úti á landi.