heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna á þessu frumvarpi um breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu. Þegar maður les frumvarpið, og ég tala ekki um 1. gr., þá dettur mér strax í hug hlutafélagafyrirkomulagið, þ.e. stjórnir í hlutafélögum. Í stjórnum hlutafélaga eru fulltrúar eigenda kosnir til að hafa eftirlit með forstjóra og æðstu stjórnendum, sem eru starfsmenn félagsins. Mér finnst, þegar ég les 1. gr. í frumvarpinu, að verið sé að setja á laggirnar stofnun, stjórn Landspítala, sem verður til þess að auka skrifræði og þyngja ákvarðanatöku. Það virðist vera að þetta sé fyrst og fremst aðstoð, faglega aðstoð, til stuðnings forstjóra spítalans, ef ég skil þetta rétt. Það eru reyndar greidd atkvæði og annað slíkt á stjórnarfundum og meiri hluti ræður þannig að það getur verið minni hluta og annað slíkt. Mér finnst svolítið verið að blanda hlutafélagafyrirkomulaginu inn í þetta með því að setja inn þessa ríkisstofnun. Ég velti því fyrir mér hvort ekki sé verið að auka skrifræðið þar sem ég sé að stjórn fyrirtækis ber ábyrgð gagnvart ráðherra á ákvörðun sem hún samþykkir, sem er 3. mgr., og svo kemur líka fram í 4. mgr. að formaður stjórnar Landspítala skuli gera ráðherra grein fyrir starfsemi stjórnarinnar. Við erum með stjórn og svo formanninn sérstaklega og svo erum við líka með forstjórann, hann ber líka ábyrgð gagnvart ráðherra. Þar er vitnað til 38. gr. starfsmannalaga og ég hefði gjarnan viljað sjá þann texta nánast inni í lögunum. Hann fær erindisbréf frá ráðherranum og ber svo ábyrgð gagnvart ráðherranum. Þá erum við komin með þrjá aðila sem bera ábyrgð gagnvart ráðherra og þurfa að upplýsa hann, og spurningin er sú hvort það sé ekki svolítið vel í lagt og þetta auki vinnuálag á ráðherrann og forstjórann.