152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[19:05]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir mjög kjarnyrtar spurningar sem snúa að þessu verkefni sem var eiginlega flóknara en ég gerði mér vonir um í upphafi, þ.e. að orða nægilega skýrt, inn í breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, hlutverk, ábyrgð og aðkomu stjórnar. Við erum með opinbera stofnun og við þurfum að skoða hana í samræmi við lög um skyldur og réttindi opinberra starfsmanna. Við þurfum líka að horfa til laga um opinber fjármál um leið og við verðum að kveða skýrt á um það hvaða hlutverki þessi stjórn gegnir og hvaða ábyrgð hún ber. Það er svo skýrt hvaða hlutverki forstjórinn gegnir og hvaða ábyrgð hann hefur gagnvart ráðherra, ráðherraábyrgðin er algerlega skýr. Við frumvarpssmíðina var horft til lagaákvæða eins og 32. gr. laga um opinber fjármál, um ársáætlanir um þessa gríðarlegu fjármuni, þetta er komið í 90 milljarða ársumfangið. Við köllum oft eftir gagnsæi og ég held að það veiti ekkert af breiðari stuðningi í stjórnun svona spítala, þar sem umfangið er jafn mikið, við meðferð fjármuna. Ég vil líka, vel að merkja, varðandi þá ábyrgð sem snýr að framkvæmd fjárlaga og endurskoðun — af því að hv. þingmaður kom inn á eftirlitið sem við höfum ekki náð að virkja, (Forseti hringir.) þ.e. innri endurskoðunarhlutann, í samræmi við lög um opinber fjármál. (Forseti hringir.) Ég held að það hafi tekist ágætlega að reyna að teikna þetta hlutverk og ábyrgð inn.

(Forseti (DMÁ): Forseti minnir hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á að virða ræðutíma.)