heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Maður vonast til að stjórn Landspítalans muni létta álagi af forstjóranum. Það breytir því ekki að í svona stofnun er alveg gríðarlega mikilvægt að hafa öflugan forstjóra og hafa öfluga framkvæmdastjórn. Ég hefði alveg getað séð það fyrir mér að þetta yrði ákvæði um framkvæmdastjórn Landspítalans þar sem hinir ýmsu framkvæmdastjórar mynduðu framkvæmdastjórn sem bæri ábyrgð gagnvart ráðherra. En svo er ekki. Þegar ég les þetta núna virðist það vera svo að í samráði við forstjóra eigi að marka langtímastefnu. Það gæti verið íþyngjandi fyrir forstjórann sem er að reka spítalann að hafa stjórn yfir sér sem er kannski ekki alveg sammála. Mikil orka gæti farið í það og það gæti bitnað á öðrum þætti rekstrarins.
Mig langar að spyrja ráðherrann hvort það hafi ekki verið rétt, og ég tek undir það, að hafa starfsmenn sem væru með atkvæðisrétt og svo er það kannski líka spurning hvort þetta verði opinbert hlutafélag eins og er í Noregi, sýnist mér, eins og kemur fram í frumvarpinu.