heilbrigðisþjónusta.
Hæstv. forseti. Ég legg áherslu á að eftir sem áður er mikilvægt, samhliða öllum þessum breytingum, að við skilgreinum hlutverk spítalans mjög vel. Það talar bara mjög vel inn í það mál sem við vorum að ræða hér á undan, um að sinna ólíkum þjónustustigum, fyrsta, annars og þriðja stigs þjónustu, svo að ég tali nú ekki um vísindaþáttinn og menntun starfsfólks inn í framtíðina, það hvílir líka á spítalanum. Ég held að hér hafi tekist vel til. Það sem var reynt að gera er að tryggja að ábyrgð forstjóra haldist óbreytt í samræmi við lög, það er mikilvægt, og í samræmi við ábyrgð og skyldur sem fjallað er um í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna. Það er líka þannig að við hurfum frá þessu fyrirkomulagi 2007, um stjórnir, vegna þess að þá var talið að ábyrgð forstjóra væri ekki nægilega skýr. Ég held að hún verði að vera það áfram en það komi ekki í veg fyrir að stjórn þjóni þeim tilgangi sínum að styðja við stjórn stofnunarinnar. Það gæti auðvitað þýtt, eins og hv. þingmaður segir, lengri tíma í ákvarðanatöku en ég held að það muni án vafa styrkja hana.