heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Það eru óvenju gleðilegt að stíga í þessa pontu núna. Það frumvarp sem hæstv. heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórsson leggur hér fram er að mínu mati virkilega þarft. Mér líst vel á frumvarpið og vona að heilbrigðisráðherra gangi áfram vel með þetta mál. Ég get samt ekki alveg setið á mér að taka til máls þó að ég ætli ekki endilega að tefja heilbrigðisráðherra í einhverri gíslatöku alveg fram á síðustu mínútu, því að mér er málið pínulítið skylt — frú forseti svona virkar þessi vinnustaður stundum. Á 150. löggjafarþingi var líka lagt fram frumvarp. Fyrsti flutningsmaður var Ólafur Ísleifsson, fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, og einn af meðflutningsmönnum frumvarpsins sá sem hér stendur. En líklega hefur það ekki komið úr réttri átt því að ekki er efnislegur munur á málinu. Við samlestur þessara frumvarpa er það meira að segja svo að finna má ítrekað í textanum algerlega samhljóma setningar, til að mynda 2. mgr. 20. gr. laganna, ráðherra skal skipa sjö menn í stjórn. Fyrsta setningin í nýrri grein sem kemur á eftir 8. gr. a. laganna í frumvarpi ráðherra hljóðar svo: „Ráðherra skipar sjö manna stjórn Landspítala.“ Ég ætla ekkert að fara að lesa mig í gegnum þetta lið fyrir lið til að æra óstöðugan sem hefur setið hér einhverja klukkutíma undir svörum. En það er ekki hægt í nútímasamfélagi að vinna með þessum hætti, frú forseti. Þetta hefði verið hægt að afgreiða á 150. löggjafarþingi, hugsanlega með einhverjum breytingum sem hefðu þá hugnast ríkisstjórninni betur, alla vega keyra málin hraðar. Fólki hefur orðið tíðrætt um það í gegnum tíðina í þessum sal, ekki síst þeim sem sitja á hverjum tíma í minni hluta, að hér fari mál áfram á hraða snigilsins. Ég held að í sumum tilfellum eins og þessu sé snigillinn latur. Þetta eru óvenju hægfara snigill. En ég lýsi því aftur yfir að ég fagna þessu frumvarpi sem hæstv. heilbrigðisráðherra leggur hér fram. Það hefði vissulega mátt koma fyrr, eins og ég vék að, en betra er seint en aldrei. Ég styð þetta og veit að hv. þm. Ólafur Ísleifsson hefði gert það líka.