heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Já, hv. þingmaður hittir naglann á höfuðið. Það er dálítið mikið um að verið sé að taka gömul frumvörp frá stjórnarandstöðunni og breyta þeim yfir í frumvörp ríkisstjórnarinnar. Ég held að það sé bara af hinu góða að góðum hugmyndum sé stolið og ég lýsti því yfir, þegar ég byrjaði hér á þingi, að ríkisstjórninni væri heimilt að taka hverja einustu góðu hugmynd sem ég kæmi með og nýta í eigin lög og reglugerðir svo lengi sem þær væru vel nýttar. En þetta getur líka stundum verið þannig að ríkisstjórnin tefur mál eins og við höfum t.d. séð með frumvarp um neysluskammta. En mig langaði að spyrja hv. þingmann hvaða fleiri góð mál hann eigi handa heilbrigðisráðherra til að nýta.