152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[19:29]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég hélt það yrði seint sem ég og hv. 10. þm. Suðvest., Óli Björn Kárason, yrðum sammála um einhverja hluti. En ég verð bara að segja að það kom ansi margt fram í þessari ræðu sem ég var hjartanlega sammála. Mig langar að byrja á öðru málinu, sem er hver stjórnar hverjum. Í mínum huga ætti stjórn að ráða forstjóra og bera ábyrgð á rekstri og öðru gagnvart ráðherra og þinginu. En það myndi brjóta upp, eins og hæstv. ráðherra benti á, núverandi módel sem gengur út á það að forstjóri svarar beint til ráðherra.

Mig langaði að heyra hugmynd hv. þingmanns varðandi það hvaða módel gæti gengið og hvað þyrfti þá að leysa hvað það varðar að í dag svarar forstjóri beint til ráðherra. Ef við byrjum þar.