heilbrigðisþjónusta.
Herra forseti. Það liggur í hlutarins eðli að ef farið verður að þeim hugmyndum eða tillögum sem ég setti hér fram, þ.e. að stjórn ráði og reki og marki forstjóra verksvið, þá er það stjórnin sem svarar til ráðherra, eins og ég hygg að ég hafi tekið fram, og svarar líka gagnvart okkur hér á þinginu, fjárveitingavaldinu o.s.frv., en ekki forstjórinn. Forstjórinn svarar til stjórnarinnar, ég vona að þetta sé alveg skýrt. Ráðherra getur auðvitað alveg eins og velferðarnefnd eða fjárlaganefnd, eða hvaða nefnd sem er, óskað eftir því að fá forstjóra Landspítalans á sinn fund til að ræða einstök atriði. Það er fullkomlega eðlilegt. Það viðgengst hjá ríkisfyrirtækjum og ríkisstofnunum sem eru með sjálfstæðar stjórnir sem ráða sína forstjóra. Það er ekkert að því. En ábyrgðin gagnvart ráðherranum liggur hjá stjórn spítalans sem ráðherrann skipaði.